01. júlí 2008 klukkan 01:55
Jæja margt sem hægt er ad segja núna.
Til að byrja með, þá sakna ég ykkar allveg rosalega mikið. Og vá það var skrítið að vera ekki á Patró yfir sjómannadagshelgina. Þetta var ábyggilega í fyrsta skiptið síðan ....já síðan ég fór að muna eftir mér sem ég var ekki að fagna þessarar helgar .... en já það verður bara enþá skemmtilegra að ári ekki satt?
Ég er nýkomin í sumarfrí, Ég fékk 3 vikna frí nuna 27.jun. og í 3vikur. Og 3 vikur er talin langur tími, væri eg ekki í einkaskóla væri fríið bara í hálfan mánuð, þannig að ég á bara að vera kát. Í fríinu er planið að fara til Limon og SanJosé held eg. Þó einhver hafi verið að plana ferð til Mexico, ef sú ferð verður að veruleika er ég nátturulega á leið þangað !
Ömmm....já reykingarbann á börum og skemmtistöðum hefur ekki enn verið komið á hérna, því miður segji ég bara ! ég var á skemmtistað um síðustu helgi, bara að dansa í sakleysi minu og haldi þið ekki bara að ungur maður hafi verið að láta öllum illum látum og fyrir slysni rak hann sígarettuna í hendina á mér! Og ég er með allmyndarlegt brunasár á úlnliðnum!
Um helgina (19-21.jún) fór ég með einum kennaranum mínum Harold til staðar sem heitir Canas. Sem er í svona tveggja tíma fjarlægð frá Nicoya þar sem eg bý. Þar mátti ég gjöra svo vel og halda 3 fyrirlestra um Ísland og hvernig það var að koma til Costa Rica. Á hverjum fyrirlestri voru yfir 30 manns. Og það sem meira er, þessir fyrilestrar voru að sjálfsögðu á spænsku!
Smá skrítið sem ég er að átta mig á, feimni er ekki til í mínum orðaforða lengur! Eða ekkert sem heitir. Við erum að tala um þessa fyrirlestra! Við erum að tala um að ég SÖNG! ég SÖNG ! fyrir framan 100 manns á íslensku fyrir mánuði eða svo. Ekkert stórvægilegt, söng "höfuð, herðar, hné og tær" og eitthvað svoleiðis. En þeir sem þekkja mig vita að ég syng ekki! en núna, ekkert mál! Ég er alltaf að halda fyrirlestra í skólanum mínum, á spænsku að sjálfsögðu! ég er farin að svara í síman á fullu! Sem fyrir nokkrum vikum var það versta sem ég vissi!
Ég er líka búin að vera rosa dugleg við að stunda líkamsrækt! ÉG! af öllum, rosa dugleg ad fara í fjallgöngur upp á rosa flott fjall hérna fyrir ofan Nicoya. Geng þar uppá nánast hverja helgi með Maveck og JoséAndrés. Og já eg er líka alltaf að spila körfubolta við strákana. Og já það er eins hér, ég er vanalega með strákunum. Eins og í skólanum, ég spila blak við strákana í stað þess að lesa tískublöð með stelpunum. ehehe...
ég fór á ströndina um sl. helgi. Það var rosalega gaman, og vitimenn ég brann ekki! en eg sofnaði á ströndinni í einhvura 2 tima! eg hef aldrei farið á ströndina án þess að sofna. . . Við fórum s.s a ströndina klukkan 8 um morguninn og vorum að koma heim klukkan 7 um kveldið. Þá var lagt sig i 3-4 klukkutíma til að hvíla sig fyrir kveldið og um 11-12 var farið á uppáhalds skemmtistaðinn minn, Mambó. Þar var að sjálfsögðu dansað eins og enginn væri morgundagurinn. Og já eg fékk OF mörg komment á augun mín!
Mig langar sammt að segja ykkur svoldið hræðilegt! eins og ég hef sagt áður á eg einn bróðir hérna sem er 18 ára gamall, hann er samkynhneigður. Og ekkert að því en málið er að vegna þess að hann er samkynhneigður er hann einhvernvegin smán a fjölskylduna! spáum í því! hann kom út úr skápnum fyrir einhverjum 5-6 árum og síðan það gerðist hefur "pabbi" ekki yrt á hann né einn bróðir minn! það er hræðilegt!! eg er sammt að gera hvað eg get til að láta allavegana þá bræðurna talast, eg á enþá 6mánuði eftir ég ætla rétt að vona að mér talist ætlunnarverk mitt ...
Virðing í garð foreldra hérna er allveg rosalega mikil! eg meina ef að mamma eða pabbi segir eitthvað þá á ekkert að efast um þau orð. Þú svarar aldrei fyrir þig. Og gerir aldrei grín eða neitt þannig lagað að foreldrum þínum, foreldar hérna eru einhvernvegin í hærri sess en börn þeirra. jú þetta er allveg heima, en þú svarar allveg fyrir þig og fyrir mig er eg ekkert "hrædd" að tala við foreldra mína eins og krakkar hérna stundum virðast vera... veit ekki það er erfitt að lýsa þessu ... en þetta er rosalega skrítið. . .
Svo eru hlutir sem eru rosalega eðlilegir herna eins og að borða kvöldmat klukkan 9 eða 10 á kveldin, það er ekkert smá skrítið, öðruvísi er kannski rétta orðið. Og það að venjulega er heitara utandyra en innan. Það er eitthvað sem eg er ekkert að venjast, eg fæ alltaf gæsahúð við að fara út þar sem er svo heitt eftir að hafa verið inni, sérstaklega ef það hefur verið aircondicion (kann ekki orðið á ísl:/ ) i húsinu.
Svo var ég að spá í einu, eg er buin að búa hérna i hvaa ... 4 manuði eða svo og mér finnst ég þekkja heilann helling af fólki. og notabene í mínum bæ bua 50.000 manns. Ég vil sammt meina að maður þekki svo miklu fleiri hérna vegna þess að það er svo sjaldgæft að fólk noti bíla. Og þó maður kunni ekki nöfn á öllum þá þekkir maður það, mætir kannski alltaf einni manneskju þegar maður er að fara í skólann, þá heilsar maður alltaf og hafi maður tíma er allveg stoppað og spjallað. En á Ísl. eru allir í bílum, og það er ekkert hægt að bjóða öllum góðan daginn nema að maður geti öskrað mjög hátt. . .Og á Ísl. eru allir líka alltaf að flýta sér svo mikið, fólk hérna er mun rólegra einhvernvegin. Tranqila.
og annað, að eiga stund með fjölskyldunni er rosalega mikilvægt herna. Og þegar það er er að sjálfsögðu slökkt á sjónvarpinu. Eg veit ekki með allar fjölskyldur á Íslandi en mín fjölskylda á ekki margar svoleiðis stundir. En það er svo rosalega "næs" eitthvað, allir að spjalla, hlægja og ræða daginn og veginn. Bara í faðmi fjölskyldunnar. Þegar það er- sem er frekar oft fyllist eg einhvernvegin öryggiskennd eg veit ekki hvort að það sé vegna þess að hingað til hefur mer fundist eg svolið týnd, ný menning, nýtt tungumál, eg meina það er allveg við því að búast. en nuna er eg ein af fjölskylunni, eg á foreldra, systur , bræður, ömmu , frændur og frænkur. Ég á heima hérna ! Og jú eg lít öðruvísi út, en það eru allir að kalla mig "negra" sem þýðir svarta, og eg er að reyna að trúa að það se satt... .gengur ekki allt of vel en ehehh maður er ekkert að pirra sig á einhverju sem maður getur ekki breytt..
Það eru krakkar búnir að vera að kveðja nuna á síðastliðnum vikum, krakkar sem eru að ljúka dvöl sinni hérna , það er búið að vera hræðilegt að kveðja. En það að kveðja þau fær mig ósjálfrátt til að hugsa hvernig verður fyrir mig að kveðja. Bróðir minn (Moi) er buinn að plana að hafa roooosa kveðjuparty, með tónlist og myndum af öllu árinu og bjóða öllum vinum mínum.. En hingað til hef ég bara hugsað hve erfitt verður fyrir mig að kveðja alla hérna og þá sér í lagi fjölskylduna mína. En nú veit ég að það verður líka erfitt fyrir þau og alla hérna að kveðja mig. Og þá sérstaklega fjölskylduna mína. Ég veit ekki hversvegna en ég er orðin einskonar trúnarðarmaður systkina minna. Malixy segir mer allt, ég fæ að vita allt i lífi hennar, hun er svo æðisleg manneskja sem á alls ekki auðvelt líf, og hun segjir mer meira en vinum sínum sem hun hefur þekkt i fleiri fleiri ár. Moi, áður en eg kom voru Moi og Maly bestustu vinir, en í dag segir hann mer mun meira, og hluti sem hann segjir engum, það er natturulega allt annað en auðvelt að vera samkynhneigður í þessu samfélagi. Sem og Maveck, hann segir mér allt! hann er 25 ára gamall en við erum bestustu vinir. Og alltaf þegar hann er með vesen í vinnunni og stressaður sökum þessa eða eitthvað, kemur hann til min vegna þess að hann langar til að gleyma því um stund og við gerum ekki annað en að fíflast og hlægja!
Það er annað! ég taldi mig mjög hláturglaða manneskju og hélt að ég hafi hlegið mikið á Íslandi. En það er bara brot af því sem eg hlæ með þessari fjölskyldu. Það er svo æðislegt. Þau hafa allveg helling af vandræðum, eg meina þetta er ekkert fullkomin fjölskylda, sökum þessa er algegnt að þau reyni að gleyma öllum vanræðunum og hlægja. Og oftar en ekki er ég aðal hlátursefnið. sem er nátturulega bara gaman :P
En svona er þetta ég er alveg að njóta min í botn! enskan er farin að gleymast sem og íslenskan! Spænskan er nátturulega bara töluð. Ég á sammt svo bágt með að hugsa til baka, þegar ég kom. Talaði ekki orð í spænsku. Nuna tala ég alltaf á spænsku, þó að það sé ein og ein manneskja sem talar ensku, þá reyni ég ekki einusinni að tala ensku við hana, vegna þess að oftar en ekki tala eg meiri spænsku en manneksjan sem segist tala ensku, talar ensku.
Spáum í því, Anna litla í Tungu farin að tala spænsku!
Ég held að þið getið ekki verið annað en solt af "Anítu" ykkar hun er að skemmta sér rosalega vel, fólk er að rífast um að eyða með henni þó það væri ekki nema ein kvöldstund, hún er aldrei ein! fólk er farið að þurfa að pannta tíma með vikufyrirvara ... svona án gríns bróðir minn er eins og einkaritarinn minn. Og já hun Anna lilta í Tungu er allta manna huglúfi...( já í Costa Rica er eðlilegt að setja entinguna "íta" yfir eitthvað sem ykkur þykir vænt um, eða eitthvað sem er lítið, þannig að mitt nafn hjá þeim sem eru mér nánastir er "Aníta" - það var skrítið fyrst, hélt að þau væru buin að gleyma hvað ég héti, en núna fynnst mer það bara rosalega krúttlegt) ..
Eg vona innilega að þið séuð að hafa það gott .
heii til hamingju með afmælið :
Steinunn, MAMMA;**** , Rúnar Óli, Ólöf , Bibbi... AnnaAmma! - og allir hinir sem ég er að gleyma... ;* eg skal baka köku fyrir ykkur á næsta árii ;)
Te quiero mucho! Yo te extrano mucho ! Pero tranquila porque yo pronto estare contigo ! :D ;*

Eg og pabbi, eg i Sarprisa buning, forum a bar astamt fleira lidi til ad horfa a fobolta leik .. og ad SJALFSOGDU vann Saprisa !;)

Eg og Maew hun er rosagod vinkona min fra Tailandi

Thetta er skjaldbokuegg i salsa ... klístrad EN bragdgott!

Eg og thetta eru kaffitre thadra i bakgrunninum

thetta er fyrir rosa stora virkjun i Cañas

Mamma og PAbbi a afmaelinu hennar mamí Nana

Ég i HRAEDILEGA skolabuningnum minum!

Malixy systir min og eg

Playa Samara, thad var sammt byrjad ad dimma thegar eg tok thessa mynd :/

Richard brodir minn og eg .. NYVOKNUD! :S

Eg og Moises ;*

Maveck bródir og Eg

husid mitt ...

husid mitt, farid ad dimma, tek betri mynd sidar

Eldhusid

herbergid hans Moi

Herbergid hennar Maly .. og Richards i thu fau skipti sem hann kemur heim

Herbergid mitt

Stofan min

svona hellum vid uppa kaffi í Costa Rica
Nuna meigid thid sko vera dugleg ad commenta a thetta hja mer ROSA blogg og hellingur af myndum :D ;* Anaegd med kjelluna eda hvad ?